Eftir lúðukvöld !
Sælar gleðinnar konur og takk kærlega fyrir skemmtilegt kvöld.
Tek undir þau orð Tótu að Ásta í Þingmúla átti bestu sögu kvöldsins. Þetta var alveg eðal kvöld og sýnir enn og sannar hvað þessi félagsskapur er frábær. Anna Guðný var með eina góða sögu sem hún kom ekki að sökum hlédrægni eða mikils orðaglaums.
Eins og konur vita er Anna Guðný að vinna á karlavinnustað í tengslum við virkjanaframkvæmdirnar. Eins og gjarnan er á föstudögum spyrja vinnufélaga hvern annan hvað eigi að gera um helgina. Anna Guðný sagði að sér væri boðið
á fund hjá Gleðikvennafélaginu. Þá lifnaði nú yfir nokkrum eyrum á svæðinu, einhver brosti hringinn og segir
"Hvað ertu að segja, gleðikvennafélag? Hvað gerir það félag?"
"Nú þetta eru konur sem hittast til að gleðjast saman."
"Nei, æi, láttu ekki svona, ekki vera að snúa út úr, hvað gera þær????"
Þetta sýnir að við verðum að lesa bréfið okkar oftar og við fleiri tækifæri.
Sumir eiginmenn þykjast vera stiltir og prúðir heima þegar konurnar þeirra bregða undir sig betri fætinum. Þannig var um einn eiginmanninn í gær, hann hringdi og lét kalla spúsu sína upp á fundinum og fékk hana í símann. Hann hafði smurt hunangi í hálsinn á sér og spurði hvar hann finndi nú heimilisbiblínuna, hún væri ekki á sínum stað og úr því hann væri einn heima vildi hann kíkja í þá góðu bók. Þessu trúði frúin. Ég þori að veðja að hann hefur verið á öldurhúsi og hefur bara verið að villa á sér heimildir. Ég meina, ágætt að kíkja í biblíuna, en það var nú laugardagskvöld.
Kolgríma sem hefur verið veik og lystarlaus undanfarna daga hresstist að sjálfsögðu við að fá svona skemmtilega gesti. Hún þarf sko ekki á neinni sálgæslu að halda umfram það sem henni er klappað og hún knúsuð hér á
heimilinu. Hún hafði ekki borðað neitt í tvo daga þegar henni áskotnaðist lax á diskinn sinn í gær. Þá hresstist hún til muna og í morgun gæddi hún sér á hráum laxi. Ég heyrði ekki betur en að hún tautaði út um munnvikið að
miklar heiðurskonur hefðu þetta nú verið sem eftirlétu henni allt þetta góðgæti.
En þá er bara að taka ákvarðanir um framhaldið og fela ferðanefnd að skipuleggja ferð til höfuðborgarinnar, ákveða dagsetningu og hafa samband við Reykjavíkurdeild Gleðikvennafélags Vallahrepps.
Rannveig
<< Home